Einkennilega létt tía

A.lið Dabbi,Haffi,Jón,Hákon

B,lið Atli,Jói,Jörgen,Óli

 Já það verður ekki annað sagt en að tíminn hafi komið á óvart.Liðin nokkuð jöfn að sjá á pappírunum og Dabbi unnið einn leik á tímabilinu.Atli og félagar byrjuðu reyndar á að skora og voru yfir rétt til að byrja með.En Dabbi og co. tóku fljótlega yfirhöndina og voru komnir í sex marka forystu þegar tíminn var hálfnaður.Þá kom smá kippur í þá Jóa og skoruðu þeir þrjú í röð og smá spenna í spilunum.En það hrökk allt til baka og þegar innan við tuttugu mínútur voru eftir komust a.liðar í tíu marka mun.Hákon og Tækklarinn náðu einkar vel saman í þessum tíma og skoruðu helling saman og Haffi kom mjög vel út sem aftasti maður.Hjá b.liðum var fátt flott í gangi en Jói átti tvær vippur yfir Tækklarann og Jörgen sparkaði með tánni í rimlana.Og þeir klikkuðu endalaust á góðum færum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég veit ekki hvort menn fengu sér ábót á saltkjötinu í hádeginu enn ekkert gekk upp hvorki í markvörslu,vörn né í sókn og í þokkabót held ég að enginn hafi haft trú á þessu. Enn liðin vöru mjög jöfn í skiptingu ekkert út á það að setja.

SERIA A (IP-tala skráð) 9.3.2011 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband