Alltaf sama spennan

A.lið Dabbi,Jói,Jón,Óli

B.lið Atli,Gunni,Haffi,Jörgen

 Það er sam hvernig dregst í lið þessar vikurnar alltaf ráðast úrslitin á síðustu spyrnu kvöldsins.Leikur kvöldsins byrjaði mjög fjörlega að þessu sinni.Mörkin hreinlega mokuðust inn.Og það í jöfnum hlutföllum því jafnt var á öllum tölum meira en þrjá fjórðu hluta tímans.Tækklarinn skoraði fyrstu þrjú mörk a.liðsins og voru þau hvert öðru skrautlegra.Eitt var meira að segja frákast úr veggnum í kassann á honum og inn.En eins og sagði í byrjun virtust varnirnar eitthvað daprar því það var örugglega skorað mark á mínútu í leiknum.Þegar um tuttugu mínútur voru eftir fóru a.menn á stuttum tíma upp í fjóra í plús en b.liðar tóku þá á sig rögg og jöfnuðu mjög fljótlega og aftur var jafnt alveg til enda.Það var síðan Tækklarinn sem þrumaði boltanum að marki alveg í blálokin og við markstöngina fjær stóð Jói og tók af allan vafa um hvort boltinn færi í stöngina eða ekki potaði tuðrunni í netið.Nokkrum sekúndum síðar opnaðist hurðin og sigur a.manna staðreynd


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

maður hefði getað verið skúrkurinn í sókninni á undan með jörgen sem hefði getað skorað úrslita markið enn nær síðan sjálfur að skora úrslita markið þetta er dramatík í lagi.

SERIA A (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband